Flott að heyra frá mönnum.

Svolítið merkilegt að núna heyrst allt í einu frá öllum þeim ríkustu hér eftir að skorað var á þá... ja nema Jón Ásgeir kannske tjáir hann sig ekki hér eftir allt sem Egill "reiddist fyrir íslensku þjóðina með" en vonandi kemur hann líka að tjá sig það er fyrsta skrefið til að þeim og okkur líði betur.

 En hér kemur smá innlegg frá mér. Mér finnst svakalegt hvernig fór fyrir Kaupþingi OG ÞAÐ EIGI AÐ FARA Í MÁL OG RÍKIÐ EIGI AÐ KOMA AÐ ÞVÍ MEÐ HLUTHÖFUM en hefði ekki verið sami vandi erlendis er ekki alltaf verið að vísa í heimsaðstæður... þá á ég við fyrirsögnina hér að neðan og hvað þá með alla styrki og skatta? Gaman að sjá yfirlit yfir hvað þeir voru miklir. Fræðið mig fróðari menn og konur.

 Vonandi hafa stjórnvöld eitthvað lært af undanförnum þrem RISA gjaldþrotum og vonandi kemur ekki til fleira. Glæsilegt hvað starfa margir þarna hjá Exista get bara ekki sagt annað en gangi ykkur vel. Kunningi minn sagði að mikilvægast af öllu væri að fólk héldi vinnunni sinni og ætli það séu nú ekki orð að sönnu en til þeirra sem misst hafa hana eða annað er líka gott innlegg frá biskupi hér.


mbl.is Mistök að færa Kaupþing ekki úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti punkturinn... fallegt inn í umræðuna sem mætti heyra meira frá.

...ætli þetta sé ekki kjarni málsins og vonandi með tímanum finna það allir. Viðsnúningur margra íslendinga frá hlutum til fólks... væri öllum til góðs.


mbl.is Aldrei verið auðugri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanda fyrirsagnir

Sammála síðasta ræðumanni röng og villandi fyrirsögn í greinininni kemur allavega fram að hann veiti aldrei viðtöl um innihald eintalsins. Væri því ekki nær að hafa fyrirsögnina VEITIR ALDREI VIÐTÖL UM INNIHALD EINTALSINS. Bara svona ábending, en grínið í spaugstofunni hefur verið mjög gott og efast ekki um að margt í þessu hafi verið það líka. Þó er þessi fyrirsögn ekki mikið atriði þar sem þeir sem vilja kynna sér málið lesa einfaldlega hvað stendur í fréttinni. Og erum við ekki einmitt sjálf eða allavega isl.fyrirtæki að reyna snúa þessu öllu upp í grín í markaðskyni, sbr. Icel.Express. Vonandi trekkir þessi umfjöll fólk hingað í stað þess að fæla það frá. Svakalegt að lesa þetta um kvikmyndaliðið... Einhverntíma var þó sagt að öll umfjöllun væri betri en engin en ég er þó á báðum áttum núna.
mbl.is Veitir Íslendingum ekki viðtal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tja...

Flott að tjá sig. Eflaust margt til í þessu en hvernig væri að skýra nákvæmlega skuldirnar og hvað varð um allar innistæðurnar og það sem kom inn á öll lánin? Og hver er ábyrð eigenda? Og hvernig er líðanin að skuldsetja þjóðina svona svakalega, það skýrir vart gengismunurinn, aðhald ríkisins né aðgerðir Breta löngu eftir að þeir voru búnir að vara við þessu. Og fróðari menn meiga líka upplýsa um hvernig stóð á því að sjóðurinn sem mér skilst að eigi að borga var nánast tómur!
mbl.is Krónan stærsta vandamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tel mikilvægt

Er ekki núna mikilvægt fyrir olíufélögin að kaupa eins mikið og hægt er og fá sérstaka upphæð frá ríkinu af gjaldeyri til þess?
mbl.is Olíuverð heldur áfram að lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott umfjöllun

Glæsileg fréttatilkynning.
mbl.is Átta tilnefndir á lokahófi akstursíþróttamanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uss við Íslendingar hrystum þetta af okkur

Rétt eins og hverja aðra flensu og komum stekari út úr þessu en nokkur önnur þjóð. Áfram nú en passa sig á miklum lánum, skoða alla skilmála rækilega.
mbl.is Mjög erfiðir tímar framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. október 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband